Um Staðlavita

Frá staðli að lifandi stjórnunarkerfi

Staðall er ekki aðeins skjal til yfirlestrar eða gátlisti fyrir úttekt. Fyrirtæki þurfa að yfirfæra kröfur staðalsins í skýra ábyrgð, verklag, ákvarðanir, stýringar og gögn sem sýna fram á að kerfið sé í virkri notkun.

Staðlaviti styður fyrirtæki í þessari vegferð frá vali og túlkun á viðeigandi staðli til innleiðingar, eftirlits og stöðugra umbóta. Með því að tengja saman kröfur staðalsins, stjórnunarkerfið og daglegan rekstur verður auðveldara að sjá hvað þarf að gera, hver ber ábyrgð, hvaða gögnum þarf að safna og hvar áhættur og frábrigði kunna að leynast.

Markmiðið er ekki að koma upp kerfi sem virkar aðeins þegar úttekt stendur yfir. Markmiðið er lifandi stjórnunarkerfi sem styður við ákvarðanatöku, skapar sýnileika, heldur utan um ábyrgð og hjálpar fyrirtækinu að viðhalda gæðum og öryggi og stuðla að skilvirkni eins og við á hverju sinni.

Bóka kynningu

Stjórnunarkerfið í Staðlavita

Fjórir hlutar sem vinna saman — hver krafa er tengd viðmiði, skjali og sönnunargögnum, svo þú sérð alltaf hvað er staðfest og hvað er enn tillaga.

Stjórnunarkerfi

Umfang og skipulag, viðmið úr kröfukafla staðalsins, skjöl og ferlar, hlutverk og ábyrgð. Ertu með stjórnunarkerfi í skjölum í dag? Hlaððu því upp eða tengdu skjalageymslu — Staðlaviti les skjölin, tengir þau við viðmið og sýnir hvað vantar.

Mat og úttektir

Mat gagnvart völdum viðmiðum, gap-greiningar, innri úttektir og beiðnir um gögn. Matið greinir á milli þess sem er skjalfest, þess sem virðist framkvæmt og þess sem er staðfest með gögnum.

Vöktun

Er starfsemin framkvæmd eins og ákveðið var? Vöktunarreglur byggja á gögnum úr tengdum rekstrarkerfum — aðgangsskrám, afritakeyrslum, atvikaskrám — og senda viðvaranir þegar sönnunargögn vantar eða eru orðin úrelt.

Úrbætur

Frávik, veikleikar og aðgerðir í sama vinnusvæði — tafarlausar leiðréttingar, úrbótaaðgerðir, rótargreining og sannprófun. Hvert mál sýnir uppruna sinn og tengd viðmið, skjöl og sönnunargögn.

Viðbót við Staðlavita

Regluviti

Regluviti er viðbót sem aðstoðar við lögfræðileg álitaefni — þar á meðal lagalegar kröfur sem tengjast starfseminni þinni og hvernig þær tengjast þeim stöðlum sem þú vinnur með.

Þannig sérðu kröfurnar í einu samhengi: hvað lögin krefjast, hvað staðallinn krefst og hvar þetta fer saman í þínu stjórnunarkerfi.

Kynna mér Regluvita
Viltu sjá stjórnunarkerfið í notkun?

Við hjá Staðlavita komum gjarnan til þín og höldum kynningu fyrir teymið á staðnum — eða hittum þig á fjarfundi þar sem við sýnum kerfið í notkun á lifandi sýnidæmi byggt á ISO/IEC 27001.

Við göngum í gegnum vegferðina eins og hún lítur út hjá þér: hvaða staðlar henta starfseminni, hvernig viðmiðin eru valin, hvað eigin skjöl uppfylla þegar og hvernig vöktun og úrbætur halda kröfunum í lagi eftir innleiðingu.